Home sweet home

Ég er komin heim úr yndislegasta sumarfríi ever. Er búin að vera með fjölskyldunni minni núna í 3 vikur samfleytt - og langar bara í meira.

Er búin að ferðast um Ítalíu, vera með tengdamömmu minni og fjölskyldunni hennar og hún er búin að dekra við okkur út í eitt og gefa okkur allt of miklar gjafir, og elda fullt fullt af grænmeti fyrir mig og allt. 

Ætla bara að segja núna áður en ég fer að sofa að það er hægt að vera í fráhaldi á Ítalíu þó það fáist ekki hveitikím og sykurlaust gos þekkist varla á þessum afskekktu stöðum sem ég var á. Ég er ennþá að undrast á því að ég skuli ekki hafa sagt bara - "æi ég tek mér bara pásu á meðan ég er í fríi" -  en það kom bara 2 upp í huga minn, í fyrra skiptið í upphafi ferðarinnar og þá var ég búin að sjá fram á að hveitikímið myndi endast stutt og það var hvergi hægt að fá sykurlaust gos nálægt húsinu.  Í annað skiptið var í London í gær - á bráðamóttökunni með eldri strákinn. En það endaði sem betur fer allt vel og ég er ennþá í fráhaldi eftir 20 daga ferðalag með næstum ekkert hveitikím og ég fékk PEPSI MAX í fyrsta skipti í gær á þessum 20 dögum. Það er allt hægt í fráhaldi og með trúnni á æðri mátt.

Hafið það sem allra allra best dúllurnar mínar og ég þakka kærlega fyrir kveðjurnar. Hlakka til að hitta ykkur.

img_4731b.jpgimg_4741a.jpgHérna koma 2 myndir sem brósinn minn var að senda mér af strákunum mínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Dóra

Velkomin heim. Hlakka til að hitta þig... Við erum að stefna að hitting fljótlega... Gott að gekk vel.....Allt er hægt í fráhaldi.. Það er bara þannig...

Helga Dóra, 1.8.2008 kl. 01:16

2 Smámynd: Kristborg Ingibergsdóttir

Hæ sæta, velkomin heim elskan, hlakka ótrúlega mikið til að hitta þig. Þú ert algjör hetja :o)

Kristborg Ingibergsdóttir, 1.8.2008 kl. 01:36

3 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

Velkomin heim elsku skvís og frábært að allt gekk vel, vona að stráksi sé að ná sér.

kveðja Elísabet

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 1.8.2008 kl. 18:37

4 Smámynd: Marilyn

Velkomin heim - hefði getað sagt þér þetta með ítalana og pepsí maxið - ein afgreiðslukonan hélt ég væri að biðja um speck (svínafitu) þegar ég spurði hvort hún vissi hvað pepsi væri.

Marilyn, 1.8.2008 kl. 19:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband