Slagur

Ja hérna hér.
7 ára barnið var að koma heim úr skólanum rétt í þessu og segir við mömmu sína voðalega rogginn " mamma veistu af hverju ég er að kom heim núna" (hann var sem sagt hálftíma lengur en venjulega á leiðinni). Mamman svarar "nei" og á von á því að barnið segi henni eitthvað voðalega skemmtilegt sem gerðist.  Barnið segir "af því að ég var í slag". Hjartað í mömmunni stoppaði og leitaði að blóðslettum  út um allt, en engin ummerki slagsmála eru sjáanleg á barninu.  Þegar mamman er búin að fullvissa sig um að engin bein séu brotin og ekki skráma á húðinni nær barnið að halda áfram að segja stoltur frá því að hann hafi "pikkað fight" við krakka í 5. bekk, af því að einn þeirra hafði sagt við bekkjarfélaga sonarins að ef hann færði sig ekki frá myndi hann kýla andlitið af vininum. Bekkjarfélaginn hörfaði en litli 7 ára töffarinn sagði við 5. bekkingana "wanna fight" og slóst sem sagt við einn þeirra og svo þegar fleiri 5. bekkingar voru farnir að slást við þann litla, þá ákvað sá litli að hætta og koma heim.  Sem betur fer.

Og nú er hann endurtekið búinn að spyrja mömmu sína hvort henni finnist hann vera kjarkaður fyrir að hafa gert þetta. Úff það er erfitt að svara þessu. Auð'vitað er hann kjarkaður, en OMG þetta er ekki það sem maður vil að litla, ég endurtek litla barnið manns sé að gera.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brussan

úffffff.......þvílíkiur nagli........hvernig verður frammhaldið.......það er samt gott að hann er ekki að láta vaða yfir sig og þorir að standa á sínu

Brussan, 2.10.2008 kl. 16:31

2 Smámynd: Kristborg Ingibergsdóttir

Vonandi lúskra þeir ekki á honum á morgun litla karlinum :o)

Sem er jú bara 7 ára nagli.

Kristborg Ingibergsdóttir, 2.10.2008 kl. 17:00

3 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

úúfffff ég brosti nú út í annað við byrjun lesturs en fékk svo sting í hjartað

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 3.10.2008 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband