Síðasta vika í sumarfríi

Jæja núna er síðasta vikan af 7 í sumarfríi - ég er búin að vera í þvílíkt geggjuðu sumarfríi að ég eiginlega kemst ekki yfir það. Búin að fara til Ítalíu og Englands, búin að fara í hvalaskoðun, 2x í Stykkishólm, hitta vini, bjóða fjölskyldu mannsins heim, fara í brúðkaup og afmæli, vera með strákunum mínum, taka til í þvottahúsinu, herbergjum drengjanna, skápum og bara hafa það hrikalega gott í alla staði. Þetta hefur mér allt tekist í fráhaldi.  Geggjað. Er svoooo þakklát fyrir það, vona bara að lífið haldi áfram að vera gott.

Það eru ótrúlega mikil forréttindi að fá að geta verið svona heima og heiman með börnunum sínum yfir sumarið og notið þess í tætlur. óóó vá hvað ég er eitthvað músí músí væmin núna. Ég er bara svo ánægð með hvernig þetta hefur verið í sumar og ég viðurkenni alveg að ég er með smá kvíðahnút í maganum yfir að vera að fara að vinna - líklegast hefur þetta frí verið of langt. En ég hlakka samt alveg hrikalega mikið til að hitta öll börnin mín í vinnunni og þá sem þeim tengjast og ég hlakka líka mikið til að hitta samstarfsfólkið mitt - þannig að ég veit ekki alveg af hverju ég er með hnútinn. Líklega bara vegna þess að ég veit að ég þarf að taka mig á í því að segja "nei" í vinnunni. Það er minn veikleiki. Ég verð að viðurkenna fyrir sjálfri mér að ég geti ekki gert hluti, og hætta að vinna heima á kvöldin. En það er nú ágætt að maður hafi einhver verkefni er það ekki??' Nei ég bara spyr.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Dóra

Jú, jú gott að hafa verkefni,,, en eiga verkefnin eftir vinnu ekki að vera kallinn, börnin og heimilið??? Ekki meiri vinna???

Nei, ég bara spyr?

Helga Dóra, 20.8.2008 kl. 09:20

2 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

en María, svo þér leiðist ekki síðustu vikuna máttu alveg koma og moka út hjá mér skítinn ... takk

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 20.8.2008 kl. 09:42

3 Smámynd: María

Takk Ella Sigga, ég hef það bak við eyrað :D

María, 20.8.2008 kl. 10:10

4 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

ohhh veistu það María að ég skil þig ótrúlega vel, það er ekki eins og það sé eitthvað auðvelt að segja NEI í því starfi sem þú ert í, en guð við verðum sko að læra það :-)  vertu óhrædd við að segja nei hvort sem það er við mig eða aðra hahaha nei nei segi svona bara híhí

Til lukku með æðislegt sumarfrí, fráhaldið og bara hvað þú ert yndisleg persóna

Hlakka til að hitta þig sem fyrst ;-)

knús og kram

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 20.8.2008 kl. 20:49

5 Smámynd: Brussan

við þyrftum að fletta upp orðinu nei í einhverri merkingarbók og læra hvað það þýðir og rækta það ........nei er bara NEI....ohhhhhh það getur verið svo erfitt að virkja það ...

Brussan, 21.8.2008 kl. 07:39

6 Smámynd: Sykurmolinn

Sumarið er tíminn   Frábært hvað þið höfðuð það gott í sumarfríinu og þú aldeilis áorkað miklu. 

Sykurmolinn, 21.8.2008 kl. 09:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband