Hellú, vildi bara aðeins monta mig af stóra stráknum mínum sem mér finnst svo flottur í fótboltanum (þó hann standi oft bara með hendur í vösum og fylgist með strákunum hlaupa - en hann hefur áhuga á fótboltanum og vill æfa - sem er meira en ég nennti að gera þegar ég var krakki í ofáti) mér finnst hann svo mikil hetja. Hann var að missa efri framtönn í kvöld, eða ölluheldur við foreldrarnir píndum hann í að toga hana úr svo hún myndi ekki hrökkva ofaní hann í nótt.
Hérna koma nokkrar myndir af honum.

Svo þarf ég náttúrulega að monta mig af hinum snillingnum mínum líka. Sá yngri er alveg hreint ótrúlega duglegur að æfa sig í stöfunum, hann getur skrifað þá alla og sagt hvað þeir heita, hann vill helst læra að lesa strax (4 ára) er að reyna að halda aðeins aftur af honum, en hann er samt aðeins byrjaður að lesa í Við lesum bókinni. Nú svo er hann farinn að hjóla á tvíhjóli - algjör hetja. Hérna koma nokkrar myndir af honum teknar þegar hann var með okkur á laugardagsmorguninn á fótboltamóti bróður síns. Og hann kvartaði ekki baun í bala. Hann er ótrúlegur .
Ætla svo að reyna að vera dugleg við að taka myndir af þeim núna, þe. ef mamma og pabbi keyptu myndavél handa mér úti í Íran. Þau eru að koma heim núna í kvöld loksins og ég verð nú að segja að ég er búin að sakna þeirra fullt, en vona að þau hafi skemmt sér vel.
Sé að ég hef ekki verið nógu dugleg að taka myndir af þeim yngri og nú ætla ég að reyna að standa mig betur í því.
Tenglar
Mínir tenglar
Mín lausn
- Grey Sheet Færði mig svo yfir í þessi samtök í maí
- Matarfíknarmiðstöðin Hérna byrjaði ég í febrúar 2007
Bloggvinir
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
jiii krúttsprengja með þetta síða hár og tannlaus !!
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 7.5.2008 kl. 22:41
flottir gaurar..... Alltaf krúttað að sjá þessa grísi svona tannlausa....
Helga Dóra, 7.5.2008 kl. 23:07
Mikið eru strákarnir þínir sætir - eiga náttúrulega ekki langt að sækja það
Sykurmolinn, 7.5.2008 kl. 23:07
Takk dúllurnar mínar
María, 7.5.2008 kl. 23:20
Alveg rosalega flottir strákarnir þínir María mín.
Kristborg Ingibergsdóttir, 9.5.2008 kl. 19:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.