Jæja, ætli mér hafi ekki tekist að Secreta okkur hjónin veik núna. Ég er sem sagt ennþá veik og er eiginlega bara drulluveik núna. Er búin að vera óþekk stelpa, fór á þriðjudaginn og var með námskeiðið, en fór heim í hádeginu og gerði ekki meira þann dag, en í gær vaknaði ég hitalaus og var með námskeið um morguninn fór heim í hádeginu - var ennþá hitalaus og fór þá á tvo fundi eftir hádegi. Seinni fundurinn var algjör viðbjóður (sko líðanin mín) og ég hafði hann bara mjöööööög stuttan og dreif mig heim, fékk pabba til að hjálpa mér að sækja strákana. Er svo ótrúlega heppin með þennan pabba sem er alltaf tilbúinn að stökkva til þegar dóttirin þarf á að halda. Í morgun tjáði elskulegi yndislegi eiginmaðurinn mér að hann væri kominn með yfir 38 stiga hita. Ég mældi mig, var rétt undir 38 gráðum. Megaátak þurfti til að koma drengjunum af stað í leikskóla og skóla, en það tókst og síðan lá ég bara og gat ekki gert neitt. Hringdi í vinnuna og lét vita af því að ég kæmi bara ekki neitt. 2 tímum seinna hringdi yfirmaðurinn minn og hafði miklar áhyggjur af mér - ótrúlega sætt af honum. Hann var búinn að vera svona veikur í vikunni og skipaði mér að fara á læknavaktina, sem ég ætla að gera í kvöld. Núna er eldri strákurinn í afmæli og hinn hjá vinkonu sinni - við erum svo heppin í óheppninni. Ætla að fara og gá hvort mútta geti sótt þá á eftir. Skrifa meira síðar.
Tenglar
Mínir tenglar
Mín lausn
- Grey Sheet Færði mig svo yfir í þessi samtök í maí
- Matarfíknarmiðstöðin Hérna byrjaði ég í febrúar 2007
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
æi ræfillinn ... vonandi batnar þér fljótt
Elín Sigríður Grétarsdóttir, 17.4.2008 kl. 18:25
Góðan bata í pestabæli....... Vona að drengirnir,,,, nei ætla ekki að secreta það..... Allir heilbrigðir, allir heilbrigðir, allir heilbrigðir..........
Helga Dóra, 17.4.2008 kl. 19:13
Láttu þér batna ..............við sectetum bara heilsu á liðið
Hulda Lind Eyjólfsdóttir, 17.4.2008 kl. 20:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.