Rólegheit

Er búin að vera að kafna úr rólegheitum í dag.  Við karlinn tókum til og þrifum í gær og það er barasta eitthvað svo lítið búið að vera að gera.  Strákarnir fóru báðir til vina sinna og ég fékk smá næðistíma með sjálfri mér, því karlinn fór að versla.  Barasta geggjað.  Síðan komu að vísu báðir drengirnir heim með vini sína og það er búið að vera smá stuð.  Núna er smá pása fyrir næsta stuð, en við ætlum að passa skvísur mágs míns í kvöld og þá er nú alltaf svaka stuð og það er svo notarlegt að hafa þau öll saman.  Ég barasta hreinlega dýrka að þau þekkist svona vel.

Cucurbita_moschata_ButternutSendi manninn eftir Butternut-inu í Hagkaup og hann sá eitt svona en var ekki viss um að það væri rétt og þegar hann var búinn að finna starfsmann til að aðstoða sig, þá var ákkúrat einhver að taka það :( .  En það gengur bara betur næst.  Vona að ég geti fundið það á morgun.

Takk öll fyrir að vera til.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafrún Kr.

Butternuttið er æðislegt.

Það er oftast til í hagkaup í holtagörðum.

Og alltaf til í fjarðarkaup. 

Hafrún Kr., 1.3.2008 kl. 20:35

2 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

gjössovel senda uppskriftir...ekkert londonmont hér :)

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 2.3.2008 kl. 11:26

3 Smámynd: Helga Dóra

Mig hlakka til að geta smakkað það. Er gegggt fúl að það minnki grænmetið.
Hey, hvernig gengur tösku dramað??

Helga Dóra, 2.3.2008 kl. 11:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband