Ég hringi á morgun....

Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á,
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir æða mér óðfluga frá
og árin án vitundar minnar.

Og yfir til vinarins aldrei ég fer
enda í kappi við tímann.
Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans er,
því viðtöl við áttum í símann.


En yngri vorum við vinirnir þá,
af vinnunni þreyttir nú erum.
Hégómans takmarki hugðumst við ná
og hóflausan lífróður rérum.


"Ég hringi á morgun", ég hugsaði þá,
"svo hug minn fái hann skilið",
en morgundagurinn endaði á
að ennþá jókst mill´ okkar bilið.


Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk,
að í grenndinni ennþá hann væri.


Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd
gleymd´ ekki, hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum send
er sannur og einlægur vinur.


Þýtt Sig. Jónsson
 
Sá þetta á bloggi og ákvað að setja þetta hérna inn til að minna mig á alla góðu vinina mína sem ég er allllllt of löt við að hafa samband við.
Knús.
Ef það er einhver sem hefur áhuga á að koma í kvöld, hvort sem er að prjóna eða spjalla, þá er það velkomið. Knús

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristborg Ingibergsdóttir

Yndislegt ljóð. Ég er á leiðinni elskan.

Kristborg Ingibergsdóttir, 16.9.2008 kl. 19:55

2 Smámynd: Elísabet Sóley Stefánsdóttir

váá fallegt ljóð og segir allt sem segja þarf :-)

Elísabet Sóley Stefánsdóttir, 17.9.2008 kl. 01:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband